Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/36360
Fjórða iðnbyltingin vísar til þeirra tækninýjunga sem afmá mörkin á milli raunveruleikans og sýndarveruleikans og ýta á okkur öll að breytast og aðlagast. Í gegnum fyrri iðnbyltingar þá var það eina í stöðunni fyrir forvera okkar að læra, aðlagast og breytast eða missa af lestinni. Það er það sama uppi á teningnum í dag þegar að fjórða iðnbyltingin gengur yfir á ógnarhraða og hefur margvísleg áhrif á störf okkar og líf. Í kjölfar þess að eðli starfa, hlutverk og ábyrgð breytast, verða til ný vinnubrögð sem skapa þörf fyrir nýja hæfni. Tilgangur þessarar fræðilegu samantektar er að varpa ljósi á þá hæfni sem verður mikilvægust fyrir verkefnastjóra framtíðarinnar í kjölfar fjórðu iðnbyltingarinnar. Niðurstöður gefa til kynna að ný tækni kallar á verkefnastjóra með öðruvísi tæknilega hæfni og viðhorf en áður en umfram allt að gildi mannlegrar hæfni verða mikilvæg sem aldrei fyrr.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
MPM-Lokaverkefni-Ragna.pdf | 308,27 kB | Open | Complete Text | View/Open |