Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/36374
Í ritgerðinni er leitt getum að því hvernig nýta má aðferðir verkefnastjórnunar í einstaklingsmiðaðri vinnu með einstaklingum sem vilja stuðla að betrun í eigin lífi. Rætt er um hvað skjólstæðingsmiðuð meðferð með aðferðum verkefnastjórnunar gæti falið í sér og hvað þarf að koma til til að hún nýtist. Á leiðinni er manngildissálfræði stuttlega útskýrð og hvernig hún tengist skjólstæðingsmiðaðri meðferð og hvernig sjálfsvitund og þarfir einstaklinga spila þar inn í. Að lokum verður aðferðin fléttuð inn í verkefnastjórnunarlegar aðferðir svo úr verður tillaga að aðferð þar sem skjólstæðingsmiðaðri meðferð er beitt með aðferðum verkefnastjórnunar. Þessi aðferð er í formi tillögu en vonir standa um að hún verði prófuð sem meðferðarúrræði. Í framhaldi af því væri hægt að dýpka úrræðið enn frekar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Tillaga að beitingu aðferða verkefnastjórnunar í skjólstæðingsmiðaðri meðferð hjá einstaklingum sem vilja stuðla að betrun í lífi sínu.pdf | 617.98 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |