Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/36377
Í ritsmíð þessari kanna ég hvernig tungumálið og efniskenndin er samofin í mínu listræna ferli. Tungumálið ásamt kröftugu handfjatli á efnivið er byrjunarstig í mínu listræna ferli, með því loka markmiði að blekkja skynjun áhorfandans. List er ávallt túlkun og raunveruleiki en þó ekki alltaf sannleikur. Þó svo að tungumálið sé raunverulegt þýðir það ekki endilega að það sé alltaf sannleikur. Ég tek fyrir verkin Delta – ástarsamband veiðimanns og fisks úr Villingavatnsárós, How old are you? og verkið án titils og skoða þau út frá kenningum fræðimannanna Ferdinand de Saussure og Ludwig Wittgenstein. Einnig skoða ég listamenn sem hafa haft gríðarleg áhrif á sköpunarferli mitt, þá Lawrence Weiner, Magnús Pálsson, Margréti Blöndal og Marianna Uutinen. Samhliða því vitna ég í Flúxus hreyfinguna, abstrakt expressjónisma og listhugtakið ready-made. Að lokum geri ég grein fyrir því, hvernig kenningar um tungumálið voru áhrifaríkar í verkum mínum ásamt því að treysta á innsæið og leyfa því að stjórna taktinum í átt að lokaniðurstöðu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
ANIKA.BA.RITGERD.MYNDIR.USE1.pdf | 2,73 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |