Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/3637
Rannókn þessi er framkvæmd með það fyrir augum að skoða möguleika Íslands til þátttöku í
lækningatengdri ferðaþjónustu á samkeppnisgrundvelli. Rannsóknin var því fyrst og fremst
megindleg. Spurningakönnunin var framkvæmd meðal skurðlækna og svæfingalækna og
önnur meðal ferðamanna á leið úr Bláa Lóninu. Gögnin voru greind og af þeim dregnar
niðurstöður um samkeppnisstöðu Íslands á þessum markaði. Lækningatengd ferðaþjónusta
getur orðið mjög skilvirkt og gott úrræði fyrir stjórnvöld, lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk
til þess að afla gjaldeyris, þjálfa heilbrigðisstarfsfólk og auka virðisauka af ferðamönnum.
Auk þess væri hægt að minnka spekileka úr landi og nýta bjargir betur og mannauð í
heilbrigðisþjónustu og ferðaþjónustu í kjölfar efnahagshruns á Íslandi. Ísland á mikinn
mannauð í háu menntunarstigi þjóðarinnar og tækifæri gæti gefist nú eftir fall gjaldmiðilsins
til þess að ná samkeppnisforskoti inn á þennan markað. Ísland getur nýtt óvenju mikinn
mannauð í hagfræði og viðskiptafræði saman með heilbrigðisfræði og ferðamennsku í þeirri
viðleitni að fá sem bestu útkomu og notað til þess sérstöðu menningarinnar sem er
eyjamenning. Rannsóknir sýna að hver ferðamaður í lækningatengdri ferðaþjónustu er á við
sjö venjulega ferðamenn. Til þess að vel gangi að markaðssetja land í þessari þjónustugrein
þarf það að vera samkeppnishæft í verði, gæðum og mannauði.
Þróun lækningatengdrar ferðaþjónustu hefur verið á þá leið að ferðamenn flæða frá þróuðum
löndum og nýta sér úrræði vanþróaðra ríkja. Þegnar vanþróaðra ríkja hafa ekki efni á
þjónustunni í sama mæli og þegnar þróaðra ríkja. Mikið hefur verið rætt um að ekki sé siðlegt
að íbúar ríkra landa komi og taki úrræði frá íbúum fátækra landa. Annað viðvarandi vandamál
í lækningatengdri ferðaþjónustu er að samræmd lagaúrræði skortir til verndar neytandanum og
í sumum löndum er beinlínis bannað að leita réttar síns eftir mistök í framkvæmd
læknisþjónustu. Ísland hefur sérstöðu að þessu leiti því það hefur öfluga lagavörn fyrir
neytendur heilbrigðisþjónustu og mikið gæðaeftirlit með heilbrigðisfagfólki. Þá hefur Ísland á
að skipa öflugum þjónustuaðilum á mörgum sviðum sem komið geta til stuðnings fyrir
greinina. Landfræðileg staða landsins er góð í miðju Atlantshafi mitt á milli Bandaríkjanna og
Bretlands væntanlegra markaðssvæða. Loks má nefna að höfundi eru Suðurnesin kær og hann
vildi skoða hvernig samkeppnismöguleikar þeirra væru á þessu sviði. Niðurstaða þessarar
rannsóknar er sú að Ísland er samkeppnishæft í framboði, gæðum og verði á
heilbrigðisþjónustu og að hún sé að jafnaði 50% - 90% ódýrari en sambærileg
heilbrigðisþjónusta í Bandaríkjunum. Ísland getur því boðið þjónustuna á verði vanþróaðra
ríkja í háþróuðu ríki
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
adda_sigurjonsdottir_fixed.pdf | 19.39 MB | Open | Meginmál | View/Open |