Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/36456
Hugarró er íverustaður fyrir langveikt fólk og aðstandendur þar sem hægt er að komast burt frá amstri daglegs lífs í náin tengsl við náttúruna. Hugarró rís í steinsteyptu eyðibýli við Seltjörn. Þar er aðkomusvæði, sameiginlegt eldhús og minni samtalsrými. Vestan við eyðibýlið rís nýbygging sem teygir sig út í tjörnina. Þar eru staðsett gistirými og vinnustofa. Þar er einnig jógasalur sem liggur lægra í landinu og er vatnsyfirborð tjarnarinnar í augnhæð sitjandi einstaklings. Í burðarvirki nýbyggingarinnar er viður úr Sólbrekkuskógi, sem er í nágrenninu. Í innra skipulagi er lögð áhersla á sveigjanleika, flæði dagsbirtu og breytilega sjónása: Arkitektúr getur ekki læknað sjúkdóma en góður arkitektúr getur haft mikil áhrif á andlega heilsu og vellíðan.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinagerð_Skemman.pdf | 47.25 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |