Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/36500
Frá fornu fari hafa samfélög gert sér íverustaði ofan í jörðinnni en óvíða eru minni skil milli yfirborðs og kjarna jarðar en á Íslandi og hin óljósu mörk einkennast af sprungum og hellum. Í einni af fjölmörgum sprungum á Reykjanesi er íverustaður rithöfundar og jarðfræðings, sem dvelja þar í nokkra daga upp í mánuð í senn. Bygging, sem endurnýtir steypufleka gamallar steypustöðvar á Fitjum, liggur eftir endilangri og aflíðandi sprungunni sem er þakin svörtum sandi. Byggingin formar sig ýmist að sprunguveggnum eða afmarkar rými milli sín og brún sprungunnar. Gler byggingarinnar hleypir inn birtu á völdum stöðum og skapar einnig sjónása milli sprunguveggjanna gegnum bygginguna alla.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Rannsóknarskýrsla.pdf | 17.95 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |