Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/36550
Árlega falla til yfir tuttugu flotgallar sem notaðir eru við æfingar og neyðarútköll á sjó hjá Slysavarnarskóla sjómanna. Í verkefninu er flotgöllunum gefið nýtt hlutverk innan starfsemi Landsbjargar. Vatnsheld höfuðhlíf yfir fjallasjúkrabörur vísar annars vegar til eiginleika efnisins og hins vegar til fyrra hlutverks gallanna. Hvort sem efnið er í formi flotgalla eða hlífar veitir það áfram skjól og auðveldar störf björgunarfólks á landi, láði eða legi. Björgunarsveitirnar eru gríðarlega mikilvægur hlekkur í íslensku samfélagi sem þjóðin treystir á og finnst mér mikilvægt að gefa til baka til þeirra sem gefa svo mikið af sér.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Fra_sjo_til_fjalla_Lena.pdf | 14.25 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |