Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/36561
Í Þórkötlustaðahverfi á Hópsnesi í útjaðri Grindavíkur má finna nær aldagamalt eyðibýli, byggt af fátækum smið, sem bjó þar ásamt konu sinni og barni. Nú gegnir eyðibýlið hlutverki frumkvöðlaseturs fyrir sjálfbærar lausnir í byggingariðnaði. Eyðibýlið stendur við grunnt stöðuvatn. Landslagið er þakið hrauni og mosa og er landhalli þó nokkur. Nýtt, létt timbur- og glervirki umlykur eyðibýlið, tekur það undir verndarvæng sinn og upphefur um leið. Timbrið er rússalerki sem finnst í Selskógi, eina staka skóglendi Reykjaness. Innra skipulag byggingarinnar miðast út frá því að útveggir eyðibýlisins séu hluti af sem flestum rýmum viðbyggingarinnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hönnunargreining.pdf | 29.12 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |