Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/36567
Í þessari ritgerð fjalla ég um vinnuferlið að verkum mínum með rannsóknarvinnu, tilraunavinnu og svo að endingu niðurstöðum ef af þeim verður. Einnig fjalla ég um skrif og vinnuferli annarra fræði- og listamanna, svo sem um hugmyndir Susan Sontag, til að rýna í þátt ljósmyndunar og þess stafræna, skrif leiðbeinanda míns um landslag og líkama til að rýna í samspil innra og ytra rýmis, og í verk Naiza Khan til að rýna í þátt kortlagningar í ferlinu. Þegar ég fjalla um rými þá greini ég þau í mismunandi hluta, sem dæmi stafrænt – arkitektónísk- og eða náttúrulegt rými sem ég nálgast þó á svipaðan hátt í rannsóknarferlinu. Þó að útkoma sé misjöfn þá er ferlið mjög keimlíkt þegar ég vinn verkin. Í verkum mínum fjalla ég þannig um fjölþætta skynjun umhverfisins með innsýn í innra og ytra samhengi rýmis og efnis.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MariaSjofn_MA_thesis2020.pdf | 1.54 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |