Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/36569
Vítahringur er ástand sem erfitt er að komast úr, því það sem í fyrstu virðist vera lausn felur í sér áframhaldandi vandræði og jafnvel ófyrirséða óreglu. Velta má fyrir sér hvort vítahringir hafi einhvern tilgang, og sé hann einhver er erfitt að eygja hann. Vitahringur er hinsvegar ákveðin andstæða vítahrings. Efst í vitum snýst ljós, hring eftir hring, í endalausri lúppu. Þessi hringferð ljóssins í vitanum er tákn um stöðugleika. Ljós vitans er fastur punktur, viðmið. Vitar standa sterkbyggðir á sínum stað, þeir stuðla að öryggi og tilgangur þeirra er skýr. Stutt getur verið á milli vitahrings og vítahrings, punkts og kommu, fyrirsjáanlegs stöðugleika og ófyrirsjáanlegrar óreglu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
vitahringur:vítahringur.pdf | 11.61 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |