Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/36578
Á árunum 1968 – 1983 spruttu upp steyptar lágmyndir á útveggjum hverskonar bygginga. Þessar íslensku steinsteypulágmyndir hafa ekki fengið þá athygli í listasögu landsins sem þær verðskulda. Í verkinu Andstæður er leitast við að endurvekja listformið og glæða það nýju lífi með nútímatækni og aðferðum grafískrar hönnunar.
Andstæðum er teflt saman, líkt og gert er í þessum steyptu lágmyndum þar sem unnið er með djúp og grunn form, birtu og skugga, fljótandi efni og fast. Hér eru þessir efniseiginleikar steypunnar dregnir fram, þar sem hörð form mæta mjúkum formum, og ljós mætir skugga.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
petur_geir_magnusson_2020_honnunargreining.pdf | 37.85 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |