Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/36641
Knattspyrna er ein vinsælasta íþrótt út um allan heim enda er leikurinn ekki flókinn, einungis bolti, tvö mörk, völlur og 22 leikmenn. Fyrir marga snúast íþróttir að mestu leyti um félagslega partinn, vera með vinum fyrir, á og eftir æfingar. Þegar einstaklingar ákveða að íþróttin verði meiri en bara tómstund og skemmtun þá fer meiri tími í að sinna henni og félagslegi parturinn getur átt það til að detta svolítið út. Þegar iðkendur eru valdir í landslið Íslands í knattspyrnu taka þeir þátt í verkefnum á vegum Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ). Upplifun leikmanna í þessum skipulögðu ferðum er eins og að vera atvinnumaður, eingöngu er verið að æfa og spila, ásamt fundum og inn í því er mikill frítími (e. free time). Þessi tími er nýttur í lærdóm, tölvuleiki eða bara hanga uppi á herbergi og getur þá myndast ákveðinn tómstundaleiði hjá leikmönnum. Verkefninu sem hér um ræðir er ætlað að stuðla að uppbyggilegri notkun á frítíma í landsliðsferðum yngri landsliða KSÍ og að vinna á móti tómstundaleiða. Verkefnið skiptist í tvo hluta, greinargerð og handbók.
Í greinargerðinni er megináhersla lögð á fræðilegan bakgrunn handbókarinnar, til að mynda skilgreiningar á hugtökum, mikilvægi frítímans og tómstundamenntun. Handbókin er hugsuð fyrir landsliðsþjálfara og fararstjórn til þess að nýta í landsliðsferðum. Í handbókinni má finna fyrirlestra, hópeflisleiki og æfingar sem fjalla um leiðtogafærni, kvíða, styrkleika og hugarfar. Sambærileg handbók er ekki til hér á landi svo vitað sé.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Frítímatengd verkefni í landsliðsferðum á vegum KSÍ- Handbók fyrir þjálfara og fararstjóra.pdf | 518,02 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Handbók AYH_lokautgáfa.pdf | 850,97 kB | Lokaður til...10.02.2040 | Handbók | ||
YFIRLÝSING_AYH.pdf | 91,5 kB | Lokaður | Yfirlýsing |