Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/36653
Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed. prófs í leikskólakennarafræðum við Háskóla Íslands. Markmiðið er að auka skilning á þáttaskilum í lífi barna þegar þau fara frá leikskóla yfir í grunnskóla. Einblínt verður á kenningar fræðimanna sem tengdar hafa verið við þáttaskil, meðal annars frá Bronfenbrenner, Vygotsky, Dewey og fjölmargar rannsóknir eftir eftir íslenska fræðimanninn Jóhönnu Einarsdóttur sem byggjast á kenningum annarra fræðimanna. Í ritgerðinni verður einnig skoðað hvers vegna það er mikilvægt að skoða sjónarhorn barna, foreldra og kennara í sambandi við upplifun þeirra á þeim þáttaskilum sem eiga sér stað þegar börn fara úr leikskóla í grunnskóla og hvernig þessi þáttaskil fara fram. Helstu niðurstöður eru þær að styðja þurfi við félagsleg tengsl barna á þessum tímamótum, byggja þarf upp gott samstarf milli leik- og grunnskóla og taka þarf mið af sjónarmiði barna, foreldra þeirra og kennara þegar þau fara úr leikskóla yfir í grunnskóla.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
B.Ed_lokaritgerd_Anna_Stefania_Johannesdottir_Rikka_Emilia_Bodvarsdottir.pdf | 511.75 kB | Open | Complete Text | View/Open | |
2020_05_skemman_yfirlysing_lokaverkefni_18.05.20.pdf | 222.5 kB | Locked | Declaration of Access |