Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/36696
Þetta verkefni, sem samanstendur af greinargerð og verkefnahefti, mun vonandi verða til að endurvekja áhuga á list Kjarvals hjá nýrri kynslóð grunnskólanemenda. Kjarval er einn af ástsælustu listamönnum okkar og verða nokkur verk hans nýtt sem kveikjur að listkennslu nemenda.
Í greinargerðinni er gerð grein fyrir fræðilegum þætti verkefnisins og fjallað um kenningar nokkurra kennslufræðinga. Reifaðar eru tengingar Aðalnámskrár grunnskóla (2013) við verkefnið, það eru sjónlistir, hæfniviðmið og samþætting. Síðan er í sérstökum kafla fjallað um Kjarval. Að lokum er gerð grein fyrir námsefninu. Verkefnaheftið samanstendur af nokkrum vel völdum verkum Kjarvals og sýnt er hvernig nýta má þau sem kveikjur í kennslu myndlistar. Vonast höfundur þessa verkefnis til að myndlistarkennarar sem og aðrir kennarar geti gripið í verkefnaheftið og nýtt sér það í kennslu. Einnig væri ánægjulegt ef verkefnið yndi upp á sig og fleiri listamenn yrðu teknir markvisst fyrir í framtíðinni.