Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/36796
Rannsókn þessi er unnin í samvinnu við mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu (MSL) og er byggð á fyrirliggjandi gögnum frá þeim. Markmið rannsóknarinnar er að meta núverandi þrekpróf fyrir starfsnám í lögreglufræðum með tilliti til kynja. Gerður var samanburður á niðurstöðum þeirra sem fóru í gegnum alla þætti þrekprófsins. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að karlar séu að koma almennt betur út úr prófunum en konur. Þrátt fyrir það eru konur að fá betri einkunnir en karlar í tveimur af fimm þáttum sem teknir eru fyrir. Út frá samanburðinum má álykta að endurskoða þurfi að minnsta kosti tvo þætti þrekprófsins, hraðaprófið (áttuhlaup) og langstökk án atrennu.
Lykilhugtök: Þrekpróf, starfsnám, lögregla, kynjamunur, líkamlegar kröfur
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni_BS.pdf | 638.05 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
2016_03_skemman_yfirlysing_lokaverkefni_29.03.16.pdf | 750.45 kB | Lokaður | Yfirlýsing |