Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/36803
Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed.-prófs í grunnskólakennslu yngri barna, við deild kennslu- og menntunarfræði. Þetta verkefni fjallar um fjölbreyttar lestrarkennsluaðferðir. Fjallað er um kennsluaðferðina Byrjendalæsi og málörvunarefnið Lubbi finnur málbein. Rannsóknarspurning verkefnisins er: Hverjar eru niðurstöður rannsókna á Byrjendalæsi og hver er sérstaða málörvunarefnisins Lubbi finnur málbein? Í fyrri hluta verkefnisins verður fjallað um þróun lesturs og hvaða forsendur þurfa vera til staðar til þess að eiginlegt lestrarnám geti hafist. Farið verður í hugtökin umskráning, hljóðkerfisvitund og orðaforða. Í seinni hluta verkefnisins verður fjallað um málörvunarefnið Lubbi finnur málbein, sérstöðu þess og rannsóknina á bak við verkefnið. Einnig verður fjallað ítarlega um rannsóknina á bak við kennsluaðferðina Byrjendalæsi. Greint verður frá hvernig kennslu Byrjendalæsis er háttað og farið yfir helstu niðurstöður rannsóknarinnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
B.ed ritgerð Ólafía Ingvarsdóttir..pdf | 554.23 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
doc02993020200624141504.pdf | 275.69 kB | Lokaður | Yfirlýsing |