en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/36817

Title: 
  • Title is in Icelandic Mikilvægi hreyfingar ungra barna : hvernig leikskólar vinna með hreyfiþroska
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Í rannsóknarskýrslunni fjalla ég almennt um hreyfiþroska, mikilvægi hreyfingar ungra barna og hvernig leikskólar starfa í tengslum við hreyfiþroska barna. Athugað er hvernig unnið er með hreyfiþroska þriggja til sex ára barna í leikskóla á Íslandi og í Noregi. Verkefnið er tilviksrannsókn í formi vettvangsathugunar og viðtals. Markmiðið er að kanna hvort munur sé á starfi í tengslum við hreyfiþroska milli þessara tveggja leikskóla. Rannsóknir hafa sýnt fram á að börn hreyfa sig minna en áður og geta afleiðingar þess verið alvarlegir sjúkdómar, bæði líkamlegir og andlegir. Því er markmiðið að vekja athygli foreldra og starfsmanna innan leikskóla á mikilvægi líkamlegrar virkni ungra barna. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að starfsemi í tengslum við hreyfiþroska barna er svipuð á leikskólunum tveimur. Þó kemur í ljós að munur er á umhverfi leikskólanna á þann hátt að norski leikskólinn leggur meira upp úr því að nýta náttúruna sem mest á meðan sá íslenski hefur meira af hefðbundnum leiktækjum á sinni lóð. Í skólanámskrám beggja leikskólanna er fjallað um mikilvægi hreyfingar í starfi skólanna en norska skólanámskráin er mun ítarlegri hvað varðar umfjöllun um markmiðin með hreyfingunni en sá íslenski.

Accepted: 
  • Jul 2, 2020
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/36817


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Lokaverkefni - Sara Guðjónsdóttir -pdf.pdf1.12 MBOpenComplete TextPDFView/Open
yfirlýsing_SG.pdf146.35 kBLockedDeclaration of AccessPDF