en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/36861

Title: 
  • Title is in Icelandic Ávinningur af spunaspilum í félagsmiðstöðvum : klúbbastarf í félagsmiðstöðvum
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Í þessari ritgerð er fjallað um notagildi spunaspila í klúbbum í félagsmiðstöðvum. Spunaspil er sér flokkur spila þar sem fólk styðst við spuna og leikaraskap og getur haft áhrif á spilið sjálft og sögu þess. Stór partur af spunaspilinu felst í því að sett eru á svið einhvers konar átök sem spilararnir eiga svo að takast á við. Spunaspil geta höfðað til mjög margra og myndast þar með tækifæri til að blanda saman fjölbreyttum hópi ungmenna, ekki síst þeim sem hafa sterka félagslega stöðu við ungmenni sem standa höllum fæti félagslega. En þó eru einnig önnur notagildi spunaspila fyrir ungmennin sem eru ekki eins augljós, eins og að læra grunnatriði stærðfræðinnar, fletta upp í handbókum, að þjálfast í að skilja og tala ensku og að þjálfast í að leita sátta milli spilaranna svo dæmi séu nefnd. Spunaspil í klúbbastarfi er frábær vettvangur til þess að æfa slíkt, einkum undir leiðsögn starfsmanns í félagsmiðstöðinni. Hér verður varpað ljósi á það hvernig hægt sé að nota spunaspil í félagsmiðstöðvunum og hver sé raunverulegi ávinningurinn af slíku klúbbastarfi. Einnig verður skoðað hvaða spil henti best fyrir hina ýmsu hópa ungmenna og hvaða lærdómsgildi gætu verið fólgin í spilinu.

Accepted: 
  • Jul 2, 2020
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/36861


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Ávinningur af spunaspilum í félagsmiðstöðvum.pdf388.99 kBOpenComplete TextPDFView/Open
Yfirlysing um meðferð lokaverkefnis.pdf82.86 kBLockedDeclaration of AccessPDF