Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/36864
Markmið ritgerðarinnar var að skoða áhrif styrktarþjálfunar á börn og unglinga sem iðka knattspyrnu. Þá var skoðað hvers konar þjálfunarleiðir sýndu mestan árangur í slíkri þjálfun. Þjálfun barna og unglinga hingað til hefur einkennst af taktískum og tæknilegum æfingum en minni áhersla hefur verið lögð á styrktarþjálfun. Hefur slík þjálfun einhver áhrif á getu barna og unglinga við að spila knattspyrnu. Þá skiptir ekki minna máli að komast að því hvers konar æfingar henta við slíka þjálfun enda þarf að gæta vel að öryggi og meiðslahættu í þjálfun þeirra. Rannsóknir sýndu að styrktarþjálfun barna og unglinga hefði jákvæð áhrif undir leiðsögn þjálfara, en bæði var greint frá líkamlegum og andlegum áhrifum. Plýómetrísk- og mótstöðuþjálfun hafa mismunandi áhrif á hlaupahraða, stökkhæð og styrk í knattspyrnu. Mikilvægt er að skilgreina ástæður þjálfunarinnar áður en valið er þjálfunaraðferð.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Yfirlýsing lokaverkefni.pdf | 170.92 kB | Locked | Declaration of Access | ||
Lokaritgerð - Lokaútgáfa - pdf.pdf | 726.59 kB | Open | Complete Text | View/Open |