is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/36929

Titill: 
  • Samræming verklags hjá embættum sýslumanna
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Þessi rannsókn beinist að stefnumörkun hins opinbera varðandi samræmingu verklags hjá sýslumönnum og hvernig það málefni komst á dagskrá stjórnvalda. Tilgangur rannsóknarinnar er að greina þetta stefnumörkunarferli til þess að varpa ljósi á hvernig og hvers vegna málefnið varð pólitískt viðfangsefni og opinbert stefnumál stjórnvalda árið 2016. Rannsóknin er tilviksathugun þar sem beitt er eigindlegri aðferðafræði. Rannsóknargagna var aflað með greiningu á fyrirliggjandi skriflegum gögnum og viðtölum við sex lykilaðila sem komu beint að stefnumörkunarferlinu á ýmsum stigum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að sameining embætta sýslumanna árið 2015 og ákvörðun um að fara í vinnu við að samræma verklag árið 2016 héldust í hendur. Samræming verklags var nauðsynlegt framhald af sameiningunni í því skyni að stuðla að betri þjónustu við borgarana og færa embættin í átt að nútímalegri stjórnsýslu. Hugmyndin var búin að mótast í talsverðan tíma innan innanríkisráðuneytis áður en sýslumannaráð fékk hana til frekari þróunar og útfærslu í ársbyrjun 2016. Markmiðið með samræmingu verklags var að bregðast við vandamáli sem almennt var viðurkennt að væri til staðar. Málefnið varð að opinberu stefnumáli stjórnvalda þegar það kom fram sem áherslumál í fjármálaáætlun síðari hluta ársins 2016 og hefur verið það síðan. Frekari rannsókn á framkvæmd og innleiðingu opinberrar stefnu um samræmingu verklags hjá embættum sýslumanna er talin æskileg og full þörf á að skoða það málefni frekar við heildarstefnumótun á vettvangi sýslumanna.

  • Útdráttur er á ensku

    This research focuses on the government's formulation of public policy regarding the standardization of work processes in relation to coordination of work within the Offices of the District Commissioners in Iceland and how that issue came on the governments agenda. The purpose of the study is to analyze the formulation of this policy in order to shed a light on how and why the issue became a public policy in 2016.
    The research is a case study, where a qualitative methodology is applied. Research data was obtained through the analysis of existing public data and interviews with six key informants who were directly involved in the policy formulation at various levels. The main findings of the study are that the merger of the Offices of the District Commissioners in 2015 and the decision to commence the work to standardize work processes in 2016 were hand in hand and the work to standardize work processes was a necessary continuation of the merger in order to promote better service to the citizens and move the organizations towards a more modern administration. The idea had been evolving for a considerable time within the Ministry of Internal Affairs before the District Commissioner´s Council received it for the further development and implementation at the beginning of 2016. The aim of the standarization of work processes was to respond to a problem that was generally acknowledged to be present. The issue then became the governments public policy when it emerged as one of the items of the fiscal plan for 2017-2021 in the second half of 2016 and has been since then. Further studies on the implementation of the public policy on the standardization of work processes by the Commissioner's offices are considered desirable and full need is apparent to examine that issue further when an overall policy making of the District Commissioners will commence.

Samþykkt: 
  • 7.9.2020
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/36929


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Yfirlýsing um meðferð lokaverkefnis.pdf272,94 kBLokaðurYfirlýsingPDF
Ritgerð 2.pdf647,85 kBLokaður til...31.12.2029HeildartextiPDF