Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/36953
Á seinni hluta 20. aldar fór olíuverð að taka verðskotum sem áttu sér engin fordæmi. Rannsóknir sýndu fram á að þessi verðskot hefðu haft neikvæð áhrif á hagvöxt og jafnvel valdið kreppum. Samband olíuverðs og hagvaxtar hefur tekið breytingum á síðustu fjörutíu árum en áfram er það neikvætt. Á sama tíma og orkueftirspurn heldur áfram að aukast reyna ríki heimsins að minnka losun gróðurhúsalofttegund meðal annars með aukinni notkun endurnýjanlegra orkugjafa. Í þessari ritgerð voru athugað hvort að olíuverð og óstöðugleiki olíuverðs hefðu neikvæð áhrif á raunhagvöxt Norðurlandanna. Einnig var athugað hvort að hlutfall endurnýjanlegrar orku myndi minnka áhrifin. Notast var við vigursjálffylgnilíkan. Olíuverð hafði í einhverjum tilvikum neikvæð áhrif og óstöðugleiki þess einnig. Óstöðugleikinn hafði sterkar áhrif. Hlutfall endurnýjanlegra orku gjafa breytti engu þegar það var sett í líkanið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Yfirlýsing um meðferð lokaverkefna.pdf | 286.92 kB | Lokaður | Yfirlýsing | ||
Ritgerd_LOKA_GudmundurIG_2.0.pdf | 5.17 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |