Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/37018
Hér birtist íslensk þýðing sjöunda bréfs kvenhetjanna (lat. Heroides) eftir rómverska skáldið Públíus Óvidíus Nasó, ásamt inngangi og skýringum, en kvæði þetta er ort undir yfirskriftinni Frá Dídó til Eneasar. Þar skrifar Dídó, drottning Karþagóborgar, kappanum Eneasi bréf eftir að hann hefur yfirgefið hana til að leita þess ríkis sem guðirnir buðu honum að stofna á Ítalíu og varð síðar Rómaveldi, samkvæmt hinni rómversku hefð. Í inngangi er svo fjallað um ólík hlutverk Dídóar og Eneasar í kvæðinu, í anda feminískrar bókmenntarýni (e. feminist literary criticism), og það sem þetta segir okkur um samfélagsleg gildi eða stöðu karla og kvenna í samtíma skáldsins, auk þess sem rýnt er í bakgrunn kvæðisins og þá nýlundu, gagnrýni og lærdóm sem felst í því.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Hólmar-Hólm-BA-ritgerð-2020-latína-Skemman-yfirlýsing.pdf | 1.03 MB | Locked | Declaration of Access | ||
Hólmar-Hólm-BA-ritgerð-2020-latína.pdf | 517.35 kB | Open | Complete Text | View/Open |