is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/37101

Titill: 
  • „Þetta er bílatilvera“ Búsetuval, neysluhegðun og ferðavenjur íbúa í jaðarhverfi og miðbæjarkjarna
  • Titill er á ensku "It's a Car-Centric Existence" Choice of Residence, Consumption Behavior and Travel Habits of Residents in the Suburbs and the City Center of the Reykjavík Capital Area
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Um aldamótin tóku sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu upp stefnu um þéttingu byggðar. Innan borgarskipulagsfræða hefur hún verið talin stuðla að breyttum venjum íbúa, m.a. minni notkun einkabíla og virkari samgöngum, og þar með umhverfisvænni lífsstíl. Nýjar rannsóknir sýna hins vegar að myndin er flóknari. Með þéttingu byggðar eykst framboð á
    þjónustu og fjárráð íbúanna eru rýmri sem aukið getur neyslu. Þetta vekur spurningar um ávinninginn af stefnu sveitarfélaganna um þéttingu byggðar. Með því að rannsaka upplifun íbúa af hverfinu sínu má dýpka skilning á mismunandi búsetu fólks. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna lífsstílsviðhorf og hegðun íbúa tveggja ólíkra borgarforma, annars
    vegar í þéttbýla miðbæjarhverfinu Einholti/Þverholti í Reykjavík og hins vegar jaðarbyggðinni Áslandi í Hafnarfirði. Skoðuð er hegðun sem snýr að daglegri neyslu og fararmáta sem og aðstæður íbúa í hverfunum. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl og þau greind með eigindlegum rannsóknaraðferðum. Niðurstöðurnar sýndu nokkurn mun á lifnaðarháttum og lífsstílsviðhorfum íbúa hverfanna. Áslendingarnir tilgreindu nálægð við náttúru og staðartengsl við Hafnarfjörð sem ástæður fyrir búsetuvali. Viðmælendur úr Einholti/Þverholti vildu hins vegar búa nálægt mannlífi og þjónustu. Viðmælendum í báðum hverfum fannst hverfið sitt almennt mæta þörfum sínum og væntingum. Frávikin voru skortur á almenningssamgöngum og fjarlægð við þjónustu í Áslandi og áberandi tilvist einkabílsins í Einholti/Þverholti. Ekki var merkjanlegur munur á neysluhegðun viðmælenda. Flestir ferðuðust með einkabíl en munur var á vegalengdum og tíðni ferða, þ.e. íbúar Einholts/Þverholts notuðu bílinn minna og sjaldnar. Neysluhegðun og ferðavenjur viðmælenda réðust af nálægð við þjónustu, upplifun og framboði, sem og umhverfisvitund þeirra og efnahagslegum þáttum.

  • Útdráttur er á ensku

    At the turn of the century, municipalities in the capital area of Iceland adopted a policy of the compact city. Within urban planning, it is believed to change the habits of its citizens, e.g. by less use of private cars and more active transport, and thus promote a more environmentally friendly lifestyle. New research, however, shows a more complex picture. The supply of services in the compact city increases as well as the financial means of its residents,which can increase consumption. This raises questions about the benefits of local government policy. By researching residents’ experiences of their neighbourhoods, we can deepen our understanding. The aim of this project is to research the lifestyle attitudes and consumption behaviour of the residents of two opposing urban structures, a dense central neighbourhood (Einholt/Þverholt in Reykjavík) and a sparse one (Ásland in Hafnarfjörður). To assess everyday consumption behaviour of the residents, semi-standardized interviews were conducted and analysed using qualitative research methods. The results revealed some differences between the lifestyles and lifestyle attitudes of the two groups. The interviewees’ choice of residence in Ásland were proximity to nature and their sense of place, whereas interviewees from Einholt/Þverholt emphasized living close to people and services. Participants from both neighbourhoods felt that they generally met their needs and expectations. The deviations were the lack of public transport and proximity to services in Ásland and the prominent existence of the private car in Einholt/Þverholt. No significant difference was observed in their consumption behaviour. All travelled mostly by car, but residents of Einholt/Þverholt drove shorter distances and less frequently. The consumption and travel behaviour of all interviewees was determined by the proximity to services, experience, and supply, as well as their environmental awareness and economic factors.

Samþykkt: 
  • 29.9.2020
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/37101


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
„Þetta er bílatilvera“.pdf3,33 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
yfirlýsing.pdf12,4 kBLokaðurYfirlýsingPDF