Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/37185
Verkefnið er lokaritgerð til BA-prófs við deild menntunar og margbreytileika. Leitast er eftir að rannsaka gildi uppeldisaðferðarinnar RIE eða Resources for infant educarers, en í íslenskri þýðingu nefnist hún Virðingarríkt tengslauppeldi. Leitað verður svara við rannsóknarspurningunni: „Hvað felst í Virðingarríku tengslauppeldi og hver er hugsanlegur ávinningur uppeldisstefnunnar?“. Vonast er eftir að þessi fræðilega samantekt á RIE geti nýst foreldrum og öðrum uppalendum til að fá betri skilning á aðferðinni, og ekki síst að foreldrar geti nýtt sér aðferðirnar í uppeldi barna sinna. Hugmyndafræðin á bakvið RIE einkennist af því að setja börnum skýr mörk af yfirvegun. Leyfa á þroskaferlum barna að eiga sér stað á náttúrulegan máta og bjóða bæði grátur og hlátur barna velkominn. Uppeldisstefnan er að vissu leyti óhefðbundin og stríðir oft á tíðum gegn því sem einstaklingar hafa sjálfir verið aldir upp við.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Virðingarríkt tengslauppeldi - Kolbrún Helga Gustavsdóttir.pdf | 458,03 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing - Kolbrún Helga Gustavsdóttir.pdf | 175,94 kB | Lokaður | Yfirlýsing |