Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/37348
Í þessari ritgerð verður skoðað hvernig hinn almenni maður og kona klæddu sig frá 16.-18. öld á Íslandi. Skoðað verður af hverju heildar búningur þeirra samanstóð, úr hverju fatnaðurinn var gerður og hvort klæðaburður og tíska frá nágrannalöndum Íslands hafði áhrif á klæðaburð hinn almenna Íslending, líkt og var algengt með háttsetta aðila í samfélaginu hér á landi.
Fyrri hluti ritgerðarinnar fjallar um hvað íslenskar heimildir hafa um fatnað almúgafólks að segja, framleiðslu efnis, vaðmál, aðstæður og áhrif, kenningar um heildarbúning karla og kvenna samkvæmt rituðum heimildum, muninn á fatnaði yfirstétta og almúga, ásamt heillegum klæðum sem fundist hafa hér á landi á 16., 17., og 18. öld. Seinni hluti ritgerðarinnar fjallar um nokkur nágrannalönd og fatnað eða textílleifar frá 16.-18. öld sem hafa fundist til þess að bera saman við fundi og ritaðar heimildir á Íslandi. Lok ritgerðarinnar metur samanburðinn milli Íslands og nágrannalandanna til þess að reyna að fá mynd á og þá svara hvort almúgi Íslands hafi verið fyrir áhrifum erlendis frá ásamt niðurstöðu um klæðnað almúgakvenna og karla á 16.-18. öld.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Klæðaburður almúga Íslands á 16. til 18. öld - Jóhanna Valgerður Guðmundsdóttir.pdf | 1,11 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing-Jóhanna-Valgerður-G..pdf | 427,08 kB | Lokaður | Yfirlýsing |