is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/37607

Titill: 
  • Fjármálalæsi : fjármálafræðsla fyrir grunnskólanemendur
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Kennsluefni Fjármálafræðsla fyrir grunnskólanemendur er útbúið með það í huga að efla fjármálalæsi ungmenna í grunnskóla og námsefnið hugað til kennslu á mið- og unglingastigi. Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla frá árinu 2013 á fjármálalæsi að vera kennt á öllum stigum grunnskólans og í flestum grunnskólum landsins. Þrátt fyrir þetta er fjármálalæsi ekki sérnámsgrein heldur er gert ráð fyrir því sem hæfniviðmiði eða viðfangsefni í öðrum greinum. Rannsóknir sýna að kennara hérlendis skortir þekkingu á fjármálum og þeir treysta sér oft ekki til að kenna nemendum sínum um fjármál. Með þessu verkefni verður leitast við að setja fram fræðslu um fjármál sem hentar mið- og unglingastigi ásamt viðeigandi kennsluaðferðum.
    Höfundur aflaði heimilda vegna verkefnisins úr ýmsum áttum en erfitt reyndist að finna rannsóknir tengdar fjármálalæsi. Því virðist ekki mikið hafa verið fjallað um viðfangsefnið af fræðimönnum. Það sem samt sem áður kom á óvart við vinnslu þessa verkefnis er að á síðustu árum hefur komið út ýmiskonar námsefni sem hægt er að nýta við kennslu á fjármálalæsi og því er meira til af kennsluefni en höfundur átti von á. Aftur á móti getur reynst erfitt að vinna verkefni og að aðlaga kennslustundir að notkun þessa kennsluefnis og því er það von höfundur að kennsluefnið geti nýst í framtíðinni.

  • Útdráttur er á ensku

    Curriculum Financial education for compulsory school is created with the aim of strengthening financial literacy of students in compulsory school and the study material is intended for teaching in grades 6-10. According to the Icelandic National Curriculum Guide for Compulsory Schools from 2013, financial literacy should be taught at all levels of compulsory school in the country. Despite this, financial literacy is not a specific subject, but is intended as a learning objective in other subjects. Research show that teachers in Iceland lack knowledge of finance and often do not trust themselves to teach their students about finance. This project will seek to provide educational material for finances suitable for teaching in 6th-10th grade as well as appropriate teaching methods.
    The author obtained sources for the project from various sources, but it proved difficult to find research related to financial literacy in Iceland. Therefore, it seems that in Iceland there have not been conducted a lot of academic studies when it comes to financial literacy. While working on this project it surprised the author that in recent years various financial literacy curriculum has been published and therefore there is more curriculum available than the author expected. On the other hand, it can be difficult to work on the assignments and to adapt lessons by using the available curriculum and therefor the author hopes that this new curriculum can be used in the future.

Samþykkt: 
  • 16.2.2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/37607


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Fjármálafræðsla fyrir grunnskólanemendur.pdf904,15 kBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna
Kennsluefni_fjármálafræðsla fyrir grunnskólanemendur.pdf1,96 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Kennsluleiðbeiningar_fjármálafræðsla fyrir grunnskólanemendur.pdf1,3 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna