Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/37649
Lokaverkefnið er tvískipt. Annars vegar er um að ræða vefsíðuna Í alvöru talað og hins vegar fræðilega greinargerð. Markmið verkefnisins er að kynna aðferðir fyrir fagfólk og uppalendur um miðlun upplýsinga um kynferðisofbeldi til ungmenna og aðferðir til þess. Það krefst lagni og undirbúnings að opna á viðkvæma umræðu kynferðisofbeldis hvort sem umræðan fer fram í hópastarfi eða við einstakling. Höfundur verkefnisins telur grundvallarstoðir þess að hefja viðkvæma umræðu kynferðisofbeldis vera réttar upplýsingar og aðferðafræðin. Upplýsingabanki og óformlegar aðferðir til miðlunar upplýsinga um kynferðisofbeldi munu því gegna lykilhlutverki á vefsíðunni. Í greinagerðinni er fræðaheimur kynjafræðinnar lagður til grundvallar að upplýsingabanka vefsíðunnar, Í alvöru talað. Einnig verður greint frá helstu aðferðum sem fræðigreinin tómstunda- og félagsmálafræði hefur uppá að bjóða.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
2016_03_skemman_yfirlysing_lokaverkefni_29.03.16.pdf | 177.92 kB | Lokaður | Yfirlýsing | ||
Í alvöru talað, lokaverkefni 2021.docx (1).pdf | 300.5 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
skjáskot af vefsíðu.pdf | 1.02 MB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna |
Athugsemd: Hægt er að nálgast vefsíðu lokaverkefnisins á www.ialvorutalad.com