Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/37808
Viðfangsefni ritgerðarinnar er að athuga hvar viðskiptafræðinemar við Háskóla Íslands standa í fjármálalæsi. Rannsóknir sýna að fjármálalæsi er ábótavant hér á landi og hafa engar rannsóknir verið gerðar á viðskiptafræðinemum við Háskóla Íslands. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð þar sem erlendur spurningalisti frá Lusardi og Mitchell var þýddur yfir á íslensku og sendur út í gegnum tölvupóst á nemendur í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Þetta var gert með því markmiði að kanna þekkingu nemendanna á fjármálalæsi. Í ritgerðinni verður farið yfir hugtakið fjármálalæsi, mikilvægi þess, eldri rannsóknir og fjármálahugtök í ritgerðinni. Niðurstöður rannsóknar leiddu í ljós að fjármálalæsi viðskiptafræðinema virðist nokkuð nokkuð gott en erfitt var þó að alhæfa út frá þýðinu þar sem þátttakendur voru fáir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
LOKAVERKEFNI.pdf | 322.07 kB | Lokaður | Yfirlýsing | ||
Helga_Vilhelmina_Vilhelmsd_ttir_Lokaskil.docx-2.pdf | 1.19 MB | Lokaður til...01.01.2085 | Heildartexti |