Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/37842
Neysla kínóafræja verður vinsælli með hverju árinu, en það gerist samhliða auknum áhuga á grænmetis, vegan, glútenfríu og lífrænu mataræði. Breytt mataræði og aukin neysla kínóa er jákvæð þróun enda tengist mataræði, að hluta til, sumum af þeim umhverfis- og heilsufarslegu vandamálum sem mannkynið stendur frammi fyrir í dag. Kínóaplantan er talin vera hugsanleg lausn á mataröryggi mannkyns í framtíðinni þar sem hún getur vaxið við mismunandi veður- og umhverfisaðstæður og vegna þess hversu næringarrík hún er. Þó er með kínóaneyslu eins og margt annað í þessum efnum að henni fylgja neikvæðar hliðar. Kínóa var fyrst ræktað af Inkum í Suður-Ameríku fyrir mörg þúsund árum og var þekkt sem fæða fátækra allt fram á 20. öld þar til neysla þess öðlaðist vinsældir utan heimsálfunnar. Aukinn áhugi olli því að verð kínóa hækkaði. Þetta hefur haft áhrif á fátæk samfélög í Andesfjöllunum og neikvæð áhrif á umhverfið eru þar farin að sjást í kjölfar aukinnar framleiðslu.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| BA-ritgerd2021-NannaAmeliaBaldursdottir.pdf | 553,62 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
| YfirlysingNannaAmelia.pdf | 278,2 kB | Lokaður | Yfirlýsing |