Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/3787
Ritgerðin fjallar um samanburð á gildi útivistar í norskum og íslenskum grunnskólum. Fyrst er söguleg umfjöllun um hvers vegna útivera og markviss kennsla í að glæða áhuga á náttúrunni er svona rík í norsku og íslensku skólasamfélagi. Bornar eru saman aðalnámskrár íslenskra og norskra grunnskóla varðandi útivist og nokkuð nákvæmlega er lýst skólanámskrá tveggja grunnskóla í útivistarkennslu; annar er norskur sveitaskóli, hinn er íslenskur borgarskóli og gert grein fyrir þeim áherslumun sem birtist í skólastarfinu. Ritgerðin er fyrst og fremst heimildarritgerð en úr heimildum var unnið út frá textarýni sem telst til eigindlegra rannsóknaraðferða. Í inngangi og lokaorðum er lítillega minnst á reynslu höfundar sem íslenskum skiptinema í norskum kennaraháskóla.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð.pdf | 625.87 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |