is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/38013

Titill: 
  • Er CrossFit íþróttin sem Íslendinga vantaði?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Efnisorð: 
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð verður fjallað um af hverju Ísland var svo móttækilegt fyrir CrossFit. CrossFit var formlega komið á laggirnar árið 2001 en fyrsta stöðin á Íslandi opnaði árið 2008. Í dag eru 12 skráðar stöðvar starfandi á Íslandi sem á stuttum tíma hafa margar þurft að stækka við sig vegna aukinnar eftirspurnar. Æfingakerfið hefur verið mjög vinsælt á Íslandi á síðustu árum og í þessari ritgerð verður rýnt betur í af hverju það gerðist. Kannað verður hvaðan fastmótaðar hugmyndir um kvenleika í íþróttum eiga rætur sínar að rekja og hvaða áhrif þær hafa haft á framvindu íþrótta. Einnig er gerð grein fyrir áhrifum fyrirmynda á einstaklinga og kenning Émile Durkheim um að tilheyra tekin til nánari skoðunar og sett í samhengi við íþróttir. Fjallað er um CrossFit, sögu þess og skoðað hvernig það komst á þann stað að vera virði fjögurra milljarða Bandaríkjadala. Að lokum er CrossFit sett í samhengi við fræðilegan grunn sem og íþróttasögu Íslands og leitað að ástæðunum fyrir því að CrossFit óx og dafnaði svo vel í íslensku samfélagi.

Samþykkt: 
  • 5.5.2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/38013


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Birna_M_Masdottir_BA_Lokaverkefni_2021.pdf604.28 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Skemman_yfirlysing.pdf379.91 kBLokaðurYfirlýsingPDF