Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/38014
Ritgerð þessi fjallar um harminn sem víða má sjá í Gamla testamentinu og áhersla er lögð á harminn í Davíðssálmunum, en þar gegna harmsálmarnir mjög stóru hlutverki. Harmurinn er samofinn veruleika manneskjunnar og hefur verið það frá upphafi og því mikilvægt að harmurinn sé ekki undanskilinn í sorgarúrvinnslu eða þeim athöfnum kirkjunnar er snúa að sorg og missi. Þróun sorgarkenninga er rakin og fjallað er um þær sorgarkenningar sem flestir fræðimenn aðhyllast í dag ásamt því að fjalla um sorg almennt og áhrif guðsmyndar á sorgarúrvinnslu sem og trú fólks. En löngum hefur vantað uppá að nægilegur gaumur hafi verið gefinn að þessum þýðingarmikla þætti í hinum biblíulega boðskap.
Út frá þessu eru ritningatextar Handbókarinnar skoðaðir sem gefnir eru upp við útför og kistulagningu og því velt upp hvort að þeir séu hentugir til lestrar á þessum sorgarstundum og miðli bæði harmi og von til syrgjenda.
Í þessari ritgerð fléttast saman textar Gamla testamentisins og sorgarkenningar nútímans og varpað er ljósi á mikilvægi helgra texta við sorgarúrvinnslu og lögð áhersla á að hinir harmrænu textar séu þar ekki sniðgengnir.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
image_55415491.JPG | 1.64 MB | Locked | Declaration of Access | JPG | |
master.pdf | 649.21 kB | Open | Complete Text | View/Open |