Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3818
Lög um nálgunarbann nr. 122/2008 tóku gildi þann 1. janúar 2009. Í umfjöllun á Alþingi um frumvarp það sem varð að lnb kom fram að ekki væru til nægar upplýsingar um stöðu nálgunarbanns á Norðurlöndunum og þingmenn hefðu ekki nægjanleg gögn til þess að taka ákvörðun um breytingar að svo stöddu. Markmið þessarar ritgerðar er að sýna fram á hver tekur ákvörðun um nálgunarbann á Norðurlöndunum, skoðun á úrræðum á Norðurlöndunum og sérstaklega hvernig nálgunarbann er útfært í Noregi. Í fyrstu verður fjallað um lnb og umfjöllun um þau lög. Síðan í þriðja kafla verða skoðuð úrræði í Danmörku og Svíþjóð. Í fjórða kaflanum verður litið til útfærslu nálgunarbanns í Noregi. Í fimmta kaflanum verður gerður samanburður á nálgunarbanni í Noregi og á Íslandi og metið hvar við stöndum í samanburði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Halldor_Rosmundur_fixed.pdf | 40.07 MB | Lokaður | Heildartexti |