en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/38288

Title: 
  • Title is in Icelandic Ofbeldis- og afbrotahegðun unglinga. Tilkynningar, áhættuþættir og úrræði
  • Violent and delinquent behaviour in adolescence
Degree: 
  • Bachelor's
Keywords: 
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Ofbeldishegðun unglinga í Reykjavík er vaxandi vandamál. Á unglingsaldri fylgja nýjar áskoranir og mátar unglingurinn sig í ýmis hlutverk. Áhrif jafningjahópsins eru mikil en sterk tengsl foreldra við unglinginn hafa auk þess gríðarleg áhrif. Ofbeldis- og afbrotahegðun barna getur stofnað heilsu þeirra og þroska í hættu og felur í sér aukna hættu á frekari vandamálum á fullorðinsárum. Þar af leiðandi er mikilvægt að vera vakandi fyrir og greina þá áhættuþætti sem geta leitt til þeirrar frávikshegðunar og grípa snemma inn í til þess að hindra slíka hegðun og þróun. Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á áhættuþætti ofbeldis- og afbrotahegðunar hjá unglingum. Rýnt er í tilkynningar til barnaverndarnefndar Reykjavíkur um afbrot barns og barn sem beitir annan einstakling ofbeldi. Farið er yfir helstu úrræði sem standa unglingum til boða sem sýna af sér afbrota- og ofbeldishegðun. Niðurstöður sýna að tilkynningum um afbrot barns hafi fækkað töluvert frá árinu 2009 til 2019 en á sama tímabili hafa tilkynningar um barn sem beitir annan einstakling ofbeldi staðið í stað. Áhættuþættir afbrota- og ofbeldishegðunar eru margir en höfundur telur þá helstu vera tengsl barns við foreldra sína, heimilisaðstæður, jafningjaáhrif og ADHD. Þau úrræði sem koma helst til greina eru MST, PMTO og meðferðarheimilið Stuðlar. Hlutverk félagsráðgjafa er mikilvægt í vinnu með unglingum sem gerast brotleg og nýtast gagnreynt vinnulag og heildarsýn vel í þeirri vinnu. Fagleg þekking þeirra ásamt því að þekkja til úrræða nýtist vel í starfi með börnum og unglingum í vanda.

Accepted: 
  • May 10, 2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/38288


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
BAritgerð_Theodóra.pdf456.75 kBOpenComplete TextPDFView/Open
Yfirlýsing_Theodóra_Skemman.pdf3.86 MBLockedDeclaration of AccessPDF