is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3831

Titill: 
  • Náttúran og umhverfið í uppeldi leikskólabarna : hugmyndabanki með útiverkefnum fyrir leikskólann Gullkistu á Laugarvatni
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Náttúran og umhverfið í uppeldi leikskólabarna er viðfangsefni þessa lokaverkefnis. Í greinargerðinni er reynt að svara því hvers vegna náttúran og umhverfið er mikilvægur liður í leikskólauppeldi. Meðal annars er fjallað um dvínandi tengsl mannsins við náttúruna og hugsanlegar orsakir þess. Komið er lítillega inn á hugmyndir fræðimannanna Dewey, Gardner, Comenius og Rousseau. Einnig er fjallað um áhrif náttúrunnar á andlega og líkamlega líðan barna. Fjallað er um hegðunarvandamál og hugmyndir um að útivera dragi úr þeim. Að lokum er hlutverki leikskólakennarans í sambandi við útikennslu gerð skil.
    Aðal viðfangsefnið er hugmyndabanki með ýmis konar verkefnum til að vinna úti í náttúrunni. Í honum er reynt að flokka verkefnin eftir því hvaða námssviðum þau tengjast. Mörg verkefnin tengjast fleiri námssviðum en þeim sem þau eru flokkuð í en höfundur reynir eftir bestu getu að staðsetja þau. Hugmyndabankanum er skipt upp í þrjá kafla: Hreyfing og tónlist, náttúra og umhverfi og menning og samfélag. Málrækt og myndsköpun fléttast inn í alla kaflana. Markmið hugmyndabankans er að hvetja starfsfólk til að færa starfið í auknum mæli út fyrir húsnæði leikskólans og út fyrir leikskólalóðina.
    Lykilorð: Hugmyndabanki, útiverkefni.

Samþykkt: 
  • 1.10.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3831


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Heildarskjal.pdf4.34 MBOpinnHeildartexti - greinargerð og hugmyndabankiPDFSkoða/Opna
Greinargerd-natturan og umhverfid i uppeldi leikskolabarna.pdf231.17 kBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna
Hugmyndabanki med utiverkefnum fyrir leikskolann Gullkistu a Laugarvatni.pdf5.24 MBOpinnHugmyndabankiPDFSkoða/Opna