is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/38380

Titill: 
  • Hegðunartruflanir hjá íbúum hjúkrunarheimila með heilabilunarsjúkdóm: Hjúkrunargreiningum og -meðferð varpað yfir í ICNP
  • Titill er á ensku Behavioral disorders in nursing home residents with dementia: Nursing diagnoses and treatments mapped in ICNP
Námsstig: 
  • Bakkalár
Efnisorð: 
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur: Heilabilun er heilkenni eða ástand sem einkennist af hrörnun eða truflun á minni, hugsun og hegðun og hefur áhrif á getu einstaklinga til að framkvæma daglegar athafnir. Sjúkdómar sem valda heilabilun eru vaxandi vandamál í heiminum en fjöldi tilfella fer sífellt vaxandi. Eitt af aðaleinkennum heilabilunarsjúkdóma eru hegðunartruflanir, það eru athafnir, hegðun eða hugsunarháttur sem telst óeðlilegur eða ekki í samræmi við aðstæður. Reynast þær einstaklingunum sjálfum, aðstandendum þeirra og umönnunaraðilum yfirleitt mjög erfiðar.
    Markmið: Í verkefninu var leitast eftir því að kanna hvaða hegðunarvandamál eru til staðar hjá íbúum hjúkrunarheimila með heilabilunarsjúkdóm og hvaða gagnreynda hjúkrunarmeðferð er nýtt til að meðhöndla þessi vandamál. Jafnframt var athugað hvort þau hugtök sem eru til staðar í ICNP lýsi hegðunartruflunum og hjúkrunarmeðferð nægilega.
    Aðferðir: Valin voru hugtök sem ná yfir hjúkrunarmeðferð og hegðunartruflanir sem lýst var í heimildum. Var hugtökunum síðan varpað yfir í flokkunarkerfið ICNP til að kanna hvort þau hugtök sem er nú þegar til staðar séu nægilega yfirgripsmikil til notkunar eða hvort skortur sé á hugtökum. Nýtt var fjögurra þrepa flokkun til að meta gæði og samsvörun þeirra hugtaka sem fundust, eða fundust ekki, í ICNP.
    Niðurstöður: Samtals fundust 18 hegðunartruflanir og út frá þeim myndaðar 50 hjúkrunargreiningar og 45 möguleikar á hjúkrunarmeðferð. Hlutfallslega tilheyrðu flestar hegðunartruflanir og hjúkrunargreiningar truflun á atferli en algengast var að hugræn meðferð væri notuð til meðferðar. Vörpunin sýndi fram á að hlutfallslega vörpuðs flestar hjúkrunargreiningarnar fullkomlega en hinsvegar virtist hjúkrunarmeðferð yfirleitt varpast að hluta til.
    Ályktun: Meðferð hegðunartruflana verður að vera einstaklingsbundin og samþætt. Þörf er á frekari rannsóknum á hvaða tegund meðferðar henta hvaða tegund hegðunartruflunar.

  • Útdráttur er á ensku

    Background: Dementia is a syndrome characterized by a deterioration or disturbance in memory, thought or behavior and has a profound impact on a person's ability to perform daily activities. Dementia is considered a growing problem since it mostly affects the elderly, and the case count keeps growing with increased life expectancy. One of dementia’s distinguishing features are behavioral disturbances, which are acts or thought processes that are considered abnormal or not in accordance with the situation. Behavioral disturbances can prove to be difficult for the patient himself, his family, and his caretakers.
    Objective: This essay’s mission was to identify behavioral disturbances in nursing home residents with dementia and which evidence-based treatments and nursing interventions are available, as well as identifying whether ICNP has appropriate concepts to describe these behavioral disturbances and nursing interventions.
    Methods: Suitable concepts were identified and mapped to the ICNP classification system to place which concepts were available and if they were comprehensive enough for use. A four-step classification method was used to assess the quality and concordance of the identified concepts to those concepts found, or not found, in ICNP.
    Results: A total of 18 behavioral disturbances were identified and from them 50 nursing diagnoses and 45 nursing interventions were formed. Proportionately, most behavioral disturbances and nursing diagnoses belonged to the group of agitation symptoms, but relatively more nursing interventions belonged to the cognitive group. Mapping revealed that proportionately most nursing diagnoses were a perfect fit, but mostly nursing interventions proved to be a partial fit.
    Conclusion: Treatment must be integrated and tailored to the individual for the best possible outcome but there is an existing shortage of research on which treatments suit which behavioral disturbances.

Samþykkt: 
  • 14.5.2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/38380


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BSverkefni-Hanna-og-Lilja-PRENTA.pdf720,64 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
0415_001.pdf65,36 kBLokaðurYfirlýsingPDF