Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/3840
Í lokaverkefni þessu er fjallað um hlutverkaleikinn og hvaða þýðingu hann hefur fyrir börn því í leikskóla gegnir leikurinn mikilvægu hlutverki og má segja að hann sé hornsteinn alls leikskólastarfs. Fjallað verður stuttlega um leikinn í ljósi kenninga en þar má nefna Aristóteles, Vygotsky, Bateson, Garvey og Oloffson. Leikskólakennarar velta einatt fyrir sér hvert hlutverk þeirra er í starfi og hverjar skyldur þeirra eru gagnvart börnunum og samstarfsfólki. Farið verður stuttlega yfir hlutverk starfsfólks og þá sérstaklega hlutverk þeirra í leik barna, komið verður inn á kynjamun og samskipti barna í leik. Að lokum verður gerð stutt rannsókn þar sem rætt verður við fimm mæður leikskólabarna og þær spurðar út í hlutverkaleikinn og komist að þeirri niðurstöðu hvert þeirra viðhorf og þekking á hlutverkaleik er.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Efnisyfirlit.pdf | 83.47 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Heimildaskrá.pdf | 183.5 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna | |
utdrattur.pdf | 85.09 kB | Opinn | Útdráttur | Skoða/Opna | |
lokaritgerd_heild.pdf | 433.93 kB | Lokaður | Lokaritgerð í heild |