is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/38413

Titill: 
  • Verkir og verkjameðferð á hjúkrunarheimilum: Fræðileg samantekt
  • Titill er á ensku Pain and pain management in nursing homes: Literature reveiw
Námsstig: 
  • Bakkalár
Efnisorð: 
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur: Verkir eru algengir meðal eldra fólks og eru þeir sem búa á hjúkrunarheimilum líklegri til að upplifa verki en aðrir. Verkjameðferð er oft á tíðum ábótavant á hjúkrunarheimilum og hafa vanmeðhöndlaðir verkir fjölþætt neikvæð áhrif á líf og lífsgæði eldra fólks. Vegna lífeðlisfræðilegra breytinga er verða með hækkandi aldri hafa aldraðir einstaklingar sérstakar þarfir hvað verkjameðferð varðar og er mikilvægt að hjúkrunarfræðingar hafi næga þekkingu svo megi veita íbúum hjúkrunarheimila fullnægjandi verkjameðferð. Markmið: Markmið þessarar fræðilegu samantektar er að meta tíðni og áhrif verkja á íbúa hjúkrunarheimila og skoða hlutverk hjúkrunarfræðinga þegar kemur að verkjameðferð á hjúkrunarheimilum. Tekin verður saman sú þekking sem til er um verkjameðferð aldraðra og leitast verður við að bera kennsl á þær leiðir sem geta gagnast til að minnka tíðni verkja á hjúkrunarheimilum.
    Aðferð: Leit var framkvæmd í gagnagrunninum PubMed þar sem notuð voru ákveðin inntöku- og útilokunarskilyrði. Notuð voru fyrirfram ákveðin leitarorð og voru niðurstöður leitarinnar færðar inn í PRISMA flæðirit.
    Niðurstöður: Verkir eru gríðarlega algengir meðal íbúa hjúkrunarheimila og eru stoðkerfisverkir þar algengastir. Mikill hagur er fólginn í því að bæta verkjameðferð á hjúkrunarheimilum og getur góð verkjameðferð dregið úr þeim neikvæðu áhrifum sem verkir hafa á líf eldra fólks. Þar eru hjúkrunarfræðingar í lykilstöðu og því er mikilvægt að þeir hafi góða þekkingu á sérstökum þörfum aldraðra, þekki ódæmigerð einkenni verkja og geti notað viðurkennda verkjamatskvarða til að meta verki meðal íbúa hjúkrunarheimila. Algengast er að verkjameðferð á hjúkrunarheimilum feli í sér notkun verkjalyfja en sífellt meiri umræða er um notkun viðbótarmeðferðar. Rannsóknir hafa sýnt fram á gagnsemi viðbótarmeðferðar í verkjameðferð meðal íbúa hjúkrunarheimila þar sem verkjalyf geta haft neikvæð áhrif á líkamsstarfsemi eldra fólks. Til að veita heildræna meðferð við verkjum á hjúkrunarheimilum er því gagnlegt að nýta viðbótarmeðferð. Ályktun: Til að hægt sé að veita viðeigandi verkjameðferð á hjúkrunarheimilum þurfa stjórnvöld að tryggja næga mönnun fagfólks á hjúkrunarheimilum. Hjúkrunarfræðingar með sérþekkingu í hjúkrun aldraðra og verkjameðferð, ásamt nægilegri mönnun eru lykilþættir í því að hægt sé að veita góða verkjameðferð og stuðla þannig að bættum lífsgæðum þeirra sem dvelja á hjúkrunarheimilum.
    Lykilorð: Verkir, verkjameðferð, aldraðir, hjúkrunarheimili, hjúkrunarfræðingar, lífsgæði og viðbótarmeðferð.

  • Útdráttur er á ensku

    Background: Pain is common among the elderly and those who live in nursing homes are more likely to experience pain than others. Pain management is often lacking in nursing homes and untreated pain has a variety of negative effects on the lives and quality of life of the elderly. Due to physiological changes that occur with increasing age, elderly people have special needs in terms of pain treatment. Therefore, it is important that nurses have sufficient knowledge to be able to provide nursing home residents adequate pain treatment.
    Aims: The aim of this literature review is to assess the frequency and effect of pain on residents of nursing homes and to examine the role of nurses when it comes to pain management in nursing homes. The existing knowledge about pain management for the elderly will be compiled and efforts will be made to identify the ways that can be useful in reducing the prevalence of pain in nursing homes. Method: A search was performed in the PubMed database using certain admission and exclusion criteria. Predefined keywords were used, and search results entered into PRISMA flowchart. Results: Pain is extremely common among residents of nursing homes and musculoskeletal pain is the most prevalent. Improving pain treatment in nursing homes is of great benefit, and good pain treatment can reduce the negative effects that pain has on the lives of older people. Nurses are in key position there, so it is important that they have a good knowledge of the special needs of the elderly, know the atypical symptoms of pain and can use credited pain assessment scales to assess pain among the residents of nursing homes. Pain treatment in nursing homes most often involves the use of analgesics, but there is an increasing deliberation on the use of complementary therapy. Studies have shown the effectiveness of complementary therapy in pain management among nursing home residents as analgesics can negatively effect the elderly. To provide holistic treatment for pain in nursing homes, it is therefore advantageous to use complementary therapy.
    Conclusion: In order to provide appropriate pain management in nursing homes, the government needs to ensure adequate staffing of nursing home professionals. Registered nurses with expertise in geriatric nursing and pain management, as well as adequate staffing, are key factors in providing good pain management and thus contributing to the improved quality of life of those living in nursing homes.
    Keywords: Pain, pain management, aged, nursing homes, nurses, quality of life and complementary therapy.

Samþykkt: 
  • 20.5.2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/38413


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Verkir og verkjameðferð á hjúkrunarheimilum.pdf499,4 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing.pdf298,51 kBLokaðurYfirlýsingPDF