Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/3848
Í þessari ritgerð verður rætt um hvernig baráttuherferðir og forvarnarstörf þróunarsamvinnustofnana gegn umskurði stúlkubarna/kvenna hafa þróast frá því að einkennast af framandgervingu og forræðishyggju í það sem kallast gæti aðstoð á forsendum þiggjenda. Kynntar verða til sögunnar mikilvægi þróunarkenningarinnar Gender and Development og kvenhyggju afrískra kvenna (e. womanism) og hugtaksins atbeini (e. agency) til að gera þróun í takt við staðbundna menningarlega þætti. Því verður haldið fram að baráttan gegn umskurði hafi verið gölluð í marga staði. Baráttan hefur einkennst að skiptingu heimsins í „við og hinir“, hún hefur einkennst að fordómum og fáfræði fjölmiðlafólks og fræðimanna frá Vesturlöndum í garð þeirra sem iðka umskurð. Til að baráttan geti skilað markvissari árangri þarf að gera upp staðalmyndir og misræmið sem umlykur umræðuna um umskurð og í ritgerðinni verður gert upp ranglæti fortíðarinnar með því að beina sjónum lesenda að því sem í raun skiptir máli í umræðunni. Allar raddir sem viðkoma umskurði þurfa að heyrast og atbeini þeirra sem iðka umskurð þarf að koma við sögu í þessari baráttu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Umskurður á stúlkubörnum og konum_fixed.pdf | 399,8 kB | Lokaður | Heildartexti | ||
Umskurður á stúlkubörnum og konum - Heimildir_fixed.pdf | 72,65 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna |