is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/38563

Titill: 
  • Dreifikerfi lágvöruverðsverslana – Samspil flutninga og kolefnislosunar
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessa verkefnis var að meta kolefnislosun í dreifikerfi lágvöruverðsverslunarinnar Krónunnar á höfuðborgarsvæðinu. Krónan vinnur að því að samræma markmið sín að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Megin markmið verkefnisins var að mæla losun CO2 frá flutningabílum sem flytja vörur Krónunnar á milli vöruhúsa og verslana, og áætla aðferðir til að draga úr losuninni. Snið rannsóknarinnar var bæði megindlegt og eigindlegt. Megindlegi hlutinn fólst í greiningu á tölulegum gögnum. Eigindlegi hlutinn var á formi viðtala og vettvangsferða. Krónan úthýsir allri sinni dreifingu á vörum til þriðja aðila. Greining á flutningastarfsemi þriðja aðila var framkvæmd til þess að áætla hversu mismunandi flutningur væri á milli vikudaga. Út frá því var starfsemin á vikudögum sköluð yfir á árstímabil til að fá út heildræna niðurstöðu. Niðurstöður verkefnisins gefa til kynna að hægt væri að fella niður hluta flutninga til að draga úr losun CO2. Megintakmörkun rannsóknarinnar var að ekki er gerð grein fyrir öllum ferðum þriðja aðila, þ.e. viðkomu flutningabíla þeirra í öðrum verslunum á höfuðborgarsvæðinu í sömu ferð og vörur voru fluttar til Krónunnar. Að auki var gert ráð fyrir að flutningabílarnir keyrðu tómir til baka í vöruhúsin frá verslunum. Miklvægt er að rannsaka heildrænt dreifikerfi þriðja aðilans, en ekki bara með tilliti til Krónunnar, til að fá úr því skorið með nákvæmari hætti hversu mikil CO2 losunin raunverulega er.

  • Útdráttur er á ensku

    The purpose of this thesis was to estimate the carbon emission in Kónan‘s distribution system in the capital area of Iceland. Krónan, a low-cost supermarket, strives to synchronize their objective with the United Nations global objective regarding climate change. The main goal was to measure the CO2 emission from cargo trucks distributing Krónan‘s goods between warehouses and their stores, and provide methods that could reduce the CO2 emission. The design of the study was both quantitative and qualitative. The quantitative part included analysis of numerical data. The qualitative part consisted of unformal interviews and field trips. Krónan outsources all of their distribution to a third party provider. An analysis of the distribution was performed to estimate the difference between weekdays. Based on that, weekdays were scaled to a year to get holistic results. The results indicate that some of the transportation could be eliminated to reduce CO2 emissions. The main limitation of the study was that goods from other stores which the third party provider was distributing, was not accounted for. In addition it was assumed that the cargo trucks drove empty back to the warehouses. Therefore it is important for future researches to analyze all the distribution from the third party provider, not only in regards to Krónan, in order to determine more precisely the amount of CO2 emission.

Samþykkt: 
  • 28.5.2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/38563


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Dreifikerfi lágvöruverðsverslana - Samspil flutninga og kolefnislosunar_JökullRolfsson_Lokaritgerð.pdf1.22 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing um meðferð Lokaverkefnis.jpg204.36 kBLokaðurYfirlýsingJPG