Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/38635
Ritgerð þessi ber heitið Þróun löggjafar um fæðingar- og foreldraorlof: Eru ný lög nr. 144/2020 framsækin í þágu jafnréttis. Markmið hennar er að fjalla á heildstæðan hátt um þróun löggjafar um fæðingar- og foreldraorlof á Íslandi. Leitast er við að lýsa því hvernig löggjöf um fæðingar- og foreldraorlof hefur þróast og svara því hvort ný lög um fæðingar- og foreldraorlof nr. 144/2020 séu framsækin í þágu jafnréttis. Farið verður yfir sögu fæðingarorlofs hér á landi frá setningu fyrstu laganna með það markmið að leiða lesandan í gegnum baráttuna fyrir því fæðingarorlofi sem við þekkjum í dag. Þá verður fyrirkomulag á skiptingu fæðingarorlofsins skoðað ásamt því að skoða nýtingu foreldra á rétti sínum til fæðingarorlofs. Fæðingarorlofskerfið hefur gjarnan verið talið hornsteinn jafnréttis sem stuðlar að jafnræði kynjanna á vinnumarkaði og í samfélaginu. Verður því jafnframt farið yfir sögu jafnréttisbaráttunnar og þróun jafnréttislöggjafar á Íslandi. Til samanburðar verður litið til hinna Norðurlandanna og fjallað um gildandi fyrirkomulag fæðingarorlofs í hverju landi fyrir sig.
Niðurstöður ritgerðarinnar leiða í ljós að umræðan um rétt barnsins og líðan fjölskyldna hefur fallið í skugga jafnréttissjónarmiða sem eru ráðandi í umræðunni um fæðingarorlof. Niðurstöður rannsókna sýna að lág hámarksgreiðsla auki líkur á því að tækjuhærra foreldri nýti ekki rétt sinn til fulls. Nýju lögin frá 2020 eru framsækin í þágu jafnréttis en galli er í útfærslu á lögunum, þar sem hámarksgreiðslur hafi ekki hækkað. Þannig hefði aukinn sveiganleiki milli foreldra verið betur til þess fallinn að ná markmiðum laganna sem er að tryggja barni samvistir við báða foreldra, ásamt því að gera foreldrum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf.
The name of this thesis is Legislation development on parental leave: Are new laws nr. 144/2020 progressive in the interest of equality. The purpose of this thesis is to provide a concise overview of Iceland‘s development regarding parental leave legislation. Emphasis is on outlining how parental leave legislation evolved and answer whether the current parental law no 144/2020 is progressive in the interest of equality. The history of parental leave in Iceland will be discussed from the enactment of the first law. The aim is to guide the reader through the challenges that led to the current parental leave legislation. The allocation of leave arrangements and the parent‘s use of their right to parental leave will be examined. The parental leave system has often been considered the cornerstone of equality in the labor market and society. Furthermore, the history of the struggle for equality in Iceland and the development of equality legislation will be discussed. The current parental leave legislation of other nordic countries will be discussed for comparison.
The thesis‘ findings indicate that the discussion about children‘s rights and family well-being has been overshadowed by the equality viewpoint that has dominated the debate over parental leave. Research shows that a parent with a higher income would not fully exercise his or her parental rights. The new legislation from 2020 is progressive in the interest of equality, but it has a weakness in its execution, as the maximum payments have not increased. As a result, greater flexibility between parents may have been more conducive to achieving the law‘s goals, which are ensuring the child‘s coexistence with both parents and enabling parents to reconcile family and work life.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Þróun löggjafar um fæðingar- og foreldraorlof.pdf | 899,45 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |