Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/38745
Í verkefninu var leitast við að skoða möguleika á nýju vinnulagi og efnisvali við breytingar á Ford F150. Skoðaðar voru suður, límingar og hnoð og val á þeim efnum sem eiga við bílinn eins og hann kemur frá verksmiðjunni. Einnig hvort hægt væri að nota t.d. meira lím og hnoð í stað suðu, gerðar voru prófanir og útreikningar þar sem því var komið við ásamt því að skoða hvaða efni gætu komið í stað þess sem tekið er í burtu.
Vonast er til þess að verkefnið verði til þess að aðferðir og efnisval við vinnu hjá Arctic Trucks við bíla úr áli verði sem faglegust í framtíðinni og skili sér til starfsmanna sem vinna verkin og lærdómur og þróun á vinnubrögðum verði stöðluð og unnin á faglegum grundvelli.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Álbílabreytingar.pdf | 2,66 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |