Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/3876
Eftirfarandi rannsókn var gerð í þremur grunnskólum í Reykjanesbæ í dag¬vistar-aðstæðum skólaárið 2008–2009. Mælingar á samskiptum starfsfólks og barna voru gerðar með beinu áhorfi. Grunnlínumælingarnar voru gerðar á haustönn 2008 og voru þær viðbót við mælingar frá skólaárinu 2007–2008. Mælingarnar sem gerðar voru skólaárið 2008–2009 eru liður í því að meta áhrif hegðunarstjórnarkerfis sem kallast Stuðningur við jákvæða hegðun (Positive behavior support, eða PBS) og er verið að inn¬leiða frá og með vorönn 2009. Rannsóknin er hluti af stærri rannsókn sem er sú fyrsta sinnar tegundar. Áreiðanleikamælingar voru gerðar í 30% tilvika. Niðurstöðum var skipt niður eftir skólum. Þær sýndu að ekki komu fram mikil frávik milli skóla. Niður¬¬stöðurnar sýndu jafnframt að úrbóta er þörf í starfi frístundaheimila Reykja¬nesbæjar. Nauðsynlegt er því að starfsmenn þeirra hljóti frekari fræðslu og þjálfun í að beita stuðningi við jákvæða hegðun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Kristin_B_Jonsdottir_forsida_utdrattur_fixed.pdf | 63,59 kB | Opinn | Forsíða, útdráttur | Skoða/Opna | |
Kristin_B_Jonsdottir_Meginmal_fixed.pdf | 607,98 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
Kristin_B_Jonsdottir_Vidauki_fixed.pdf | 100,46 kB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna |