Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/38760
Þetta rannsóknarverkefni var framkvæmt með það að leiðarljósi að rannsaka hvort að ungt fólk á Íslandi byggi yfir skilning á fasteignamálum og hvaða þættir hafa áhrif á þann skilning. Rannsóknin var framkvæmd vorið 2021 og voru þátttakendur ungt fólk á Íslandi. Ástæða fyrir vali á úrtaki var hversu ört fasteignamarkaður landsins hefur stækkað á undanförnum árum og ákafa ungs fólks að koma sér inn á fasteignamarkað. Kannaður var skilningur ungs fólks í tengslum við eftirfarandi atriði: Hvort aðili hafi tekið fasteignalán áður, aldur þeirra, menntunarstig og hvort að aðili hafi fengið fræðslu um lántöku í skóla. Við úrvinnslu gagna kom í ljós að þeir þátttakendur sem tekið hafa fasteignalán eða fengu fræðslu um lántöku í skóla komu töluvert betur út en þátttakendur sem ekki höfðu gert slíkt hið sama.
Lykilorð: fasteignalán, fjármálafræðsla, skilningur, ungt fólk
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Ungt fólk og skilningur þeirra á fastiegnalánum.pdf | 2,87 MB | Open | Complete Text | View/Open |