Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/38777
Þessi ritgerð fjallar um þau áhrif sem yfirtökur hafa á mannauð fyrirtækja. Tekin verða fyrir fyrirtæki sem starfa á íslenskum markaði til að athuga áhrifin sem yfirtökurnar hafa. Rannsakendur ritgerðarinnar notuðust mest við gögn sem komu frá djúpviðtölum við stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja sem voru í yfirtökuferli eða voru tiltölulega nýbúin að ganga í gegnum það. Fyrirtækin sem tekin voru fyrir voru TSS og yfirtaka þeirra á dk hugbúnaði, Origo og yfirtaka þeirra á Strikamerki, Askja og yfirtaka þeirra á Bernhard og N1 og yfirtaka þeirra á fjórum starfsstöðvum Ísey Skyr Bar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á mikilvægi undirbúnings og upplýsingaflæðis stjórnenda þegar yfirtaka á sér stað. Mikilvægt er að gott upplýsingaflæði milli stjórnenda og starfsmanna sé til staðar. Upplýsingaflæði kemur í veg fyrir óvissu og hræðslu starfsmanna í yfirtökuferlinu. Út frá niðurstöðum var sýnt fram á það að breytingastjórnun eykur líkur á árangursríka yfirtöku og hjálpar til við að miðla framtíðarsýn og stefnu fyrirtækisins.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
B.Sc_Ritgerð_Erna-Guðrún-og-Hafdís-Alda.pdf | 1.59 MB | Open | Complete Text | View/Open |