Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/38778
Ritgerð þessi fjallar um ávinning og upplifun stjórnenda fyrirtækja á þátttöku í starfsnámi háskólanemenda á Íslandi. Starfsnám er vettvangur sem getur verið mikill ávinningur í, fyrir alla sem að því koma, nemendur, fyrirtæki og háskólanna, sé rétt að því staðið. Starfsnemar eru oft nýttir sem auka starfskraftur í ýmis verkefni, sem dýrt væri að ráða starfsmenn í. Jafnframt öðlast þeir raunhæfa reynslu af vinnumarkaðinum á því sviði sem þeir stunda nám í.
Tilgangur rannsóknarinnar var að fá innsýn í hvað fyrirtæki telja ávinning af þátttöku í starfsnámi og hver upplifun þeirra er af ferlinu. Framkvæmd voru hálfopin viðtöl við sjö viðmælendur hjá jafn mörgum fyrirtækjum. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að fyrirtæki telja mikinn ávinning í starfsnámi fyrir alla hlutaðeigandi aðila. Fyrirtæki fá að kynnast mögulegum framtíðarstarfsmönnum sem kostar fyrirtækið minna en að taka starfsmann inn með hefðbundnu ráðningarferli og geta séð hvort viðkomandi sé sá aðili sem fyrirtækið er að leita eftir til framtíðar. Starfsnemarnir komi oft með ný sjónarmið og áherslur inn í fyrirtækið sem nýtast í starfi. Ef fyrirtæki standa vel að starfsnáminu og tekst á jákvæðan hátt að kynna fyrirtækið og vinnustaðinn fyrir nemendum getur það skilar sér oftar en ekki í góðri umfjöllun. Fyrirtæki líta á þátttöku í starfsnámi sem hluta af samfélagslegri ábyrgð. Mikilvægt er fyrir fyrirtækin að gefa nemendum tækifæri á að öðlast reynslu á vinnumarkaðinum, það leiði til betri starfsmanna framtíðarinnar. Á sama tíma er einnig mikilvægt að halda góðri tengingu við háskólasamfélagið til að styðja við þróun faggreina. Háskólar ættu að leggja enn meiri áherslu á starfsnám og skoða hvernig hægt er að bæta það enn frekar.
This thesis discusses the benefits and experiences of managers in Icelandic companies with regard to participating in internship programs for university students in Iceland. An internship program is a platform that can be a great benefit for all parties involved, students, companies, and universities if done right. Students in internships are often used as extra hands to assist with various tasks that would be expensive for the company to hire a new employee for. At the same time, the students gain experience of the labour market in the field which they are studying in universities.
The purpose of this study was to gain insight into what companies consider the benefits of participating in internship programs to be and what their experience of the process is. Semi-open interviews were conducted with seven interviewees in as many companies. The main findings revealed that the managers see great benefits in internships for all parties. The managers get to know new potential employees at a lower cost than taking on traditional new hires and can see if the student in question fits into the company as a future employee. Students also often bring new perspectives and emphases to the company that are useful in their work. If companies put work and effort into the internship program, they often succeed in introducing the company as a workplace to the students which results in good publicity. The managers look at their company’s participation in internship programs as a part of their social responsibility. It is important for companies to allow students the opportunity to gain experience from the labour market, which in return will lead to better employees in the future. At the same time, it is also important to maintain a good connection with the universities to support the development of the professions. Universities should emphasize internship programs even more and look at how they can improve the programs even further.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BSc ritgerð - Þú ert alltaf betur settur að veðja á það sem þú þekkir - ESO.pdf | 530.03 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |