en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

Agricultural University of Iceland > Náttúra og skógur > B.S. verkefni >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/38848

Title: 
  • Title is in Icelandic Um ánamaðka og moltugerð
  • An overview on earthworms and vermicomposting
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Eitt að þeim verkefnum sem við stöndum frammi fyrir, til að auka umhverfisvænni lifnaðarhætti og sjálfbærni, er að minnka urðun á sorpi. Þetta kallar á bætta endurnýtingu úrgangsefna og breytt mat á efnum sem breyta má í auðlindir með réttum aðferðum, og er lífrænn úrgangur ein þeirra. Lífrænn úrgangur er enn urðaður með almennu sorpi víðsvegar á Íslandi en hann má nýta til að búa til jarðvegsbæti og áburð. Ýmsar aðferðir eru til sem jarð- eða moltugera lífrænan úrgang en þær hafa það sameiginlegt að þær forða lífrænum úrgangi frá urðun og með því að nýta lokaafurðina er næringarefnunum haldið í hringrás.
    Í þessari ritgerð mun ég rýna nánar í eina af þessum aðferðum sem er moltugerð með ánum. Ég fer stuttlega yfir líffræði og lífsferil ánamaðka ásamt hvaða gagn þeir gera í jarðveginum. Ég fer svo yfir helstu ferla í moltugerð með ánum, innihald tilbúnar ánamoltu og nokkrar aðferðir til moltugerðar með ánum. Ég fer stuttlega yfir kosti og galla þessara aðferða og velti svo fyrir mér spurningunni hvort sé framtíð fyrir þær á Íslandi.

Accepted: 
  • Jun 10, 2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/38848


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
BsRitgerðElvaBráBjarkardóttir.pdf1,13 MBOpenComplete TextPDFView/Open