is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Sálfræðideild / Department of Psychology >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/38868

Titill: 
  • Titill er á ensku Mental health, life satisfaction, and experience of prejudice against people with fibromyalgia in Iceland
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Vefjagigt er sjúkdómur sem einkennist af stöðugum sársauka, útbreiddum verkjum og stanslausri þreytu. Talið er að vefjagigt hrjái um 3-6% fólks um allan heim. Þar af eru konur í miklum meirihluta. Að auki hefur verið sýnt fram á að vefjagigt hefur áhrif á tilfinningalíf fólks, stór hluti þeirra sem greinist með vefjagigt greinist einnig með geðsjúkdóma af einhverjum toga. Orsakir sjúkdómsins eru óþekktar og vísindamenn eru ekki einróma um hverjar þær eru. Margir efast jafnvel um að sjúkdómurinn sé raunverulegur heldur sé um sálfræðilegan kvilla að ræða. Vegna þessarar óvissu hafa skapast fordómar gagnvart vefjagigt og þeim sem þjást af henni. Markmið þessarar rannsóknar var að athuga hvort fordómar gagnvart vefjagigt séu til staðar, hversu mikil áhrif þeir hafa á lífsgæði fólks með vefjagigt en einnig hvort félagslegur stuðningur skipti máli hvað varðar lífsgæði einstaklinga með vefjagigt. Spurningalisti með fimm kvörðum var lagður fyrir Facebook-hóp íslenskra einstaklinga sem þjást af vefjagigt. Niðurstöður sýndu að marktæk fylgni var á milli fordóma, félagslegs stuðnings, alvarleika vefjagigtar, andlegrar heilsu og lífsánægju. Að auki sýndu niðurstöður aðhvarfsgreiningar að fordómar, félagslegur stuðningur, alvarleiki vefjagigtar og andleg heilsa höfðu marktæk tengsl við lífsánægju.
    Lykilorð: Vefjagigt, fordómar, félagslegur stuðningur, lífsánægja

  • Útdráttur er á ensku

    Fibromyalgia (FM) is a syndrome characterized by widespread pain, constant fatigue, and tenderness all over the body. It is estimated that FM affects approximately 3-6% of the population worldwide, especially women. The syndrome has also been found to have a vast effect on emotional well-being. Most people diagnosed with FM have also already been diagnosed with some form of mental illness. Since the cause of the syndrome is unknown, and researchers disagree on it, some people do not believe FM exists. Therefore, discrimination against FM exists both among the public and health care workers. This study aimed to see if this prejudice is actual, how much it affects people, their quality of life, and if social support can help. A questionnaire with five scales regarding FM, prejudice, social support, life satisfaction, and mental health was posted in a Facebook group for Icelandic people with FM. Results from correlation tests suggest that prejudice towards FM is actual and can negatively affect people's life satisfaction. Regression analysis showed that social support, prejudice, FM' severity, and mental health all had a significant prediction value for satisfaction with life. People with FM who have good social support seemed to rate their life satisfaction higher, and people who experienced prejudice reported less life satisfaction.
    Keywords: Fibromyalgia, prejudice, social support, life satisfaction

Samþykkt: 
  • 10.6.2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/38868


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
elvabjorgloka2.pdf312.13 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna