is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/38889

Titill: 
  • Eftirsóknarverð lífvirkni í innyflum íslenskra sæbjúgna (Cucumaria frondosa)
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Sæbjúgu hafa lengi verið veidd til matar í Asíu. Síðustu ár hefur sæbjúgnaveiði farið vaxandi hér á landi. Eins og er er ekkert gert við innyfli sæbjúgna og er líkamsveggurinn eini hluti sæbjúgna sem að notaður er, sem er ekki nema um 50% líkamsþyngdar sæbjúgna. Vinsældir sæbjúgna hafa einnig aukist í heiminum vegna áhugaverðra lífvirka efna og þá sérstaklega til notkunar sem krabbameinslyf.
    Markmið þessa verkefnis var að athuga hvort að hægt er að draga út og mæla bæði bólguhamlandi virkni og andoxunarvirkni úr þörmum og maga sæbjúgna af tegundinni Cucumaria frondosa sem veiddar voru hér við land.
    Bólguhamlandi virkni var rannsökuð með prófi sem að mælir hlutfallslega hindrun á eðlissviptingu albúmíns. Það próf var þó ekki framkvæmt á sæbjúgunum þar sem að mæling á eðlissviptingu albúmíns gekk ekki upp. Andoxunarvirkni var rannsökuð með tveimur prófum, þ.e. 2,2-diphenyl-1-picrylhydrazyl (DPPH) aðferð og total antioxidant capacity (TAC) aðferð. Báðar aðferðir sýndu fram á háa andoxunarvirkni í sæbjúgunum og vísbendingar um mun á andoxunarvirkni háð þyngd sæbjúgnanna þar sem að þær þyngstu sýndu í báðum prófum minnstu andoxunarvirkni.
    Lykilorð: Sæbjúgur, útdráttur, lífvirkni, bólguhamlandi virkni, andoxunarvirkni

  • Útdráttur er á ensku

    Sea cucumbers have been fished for many years, primarily in Asia where they are a popular food source. In the last years, fishing of sea cucumber has increased in Iceland. However, currently the intestines are thrown away and only the body wall is used, which accounts for only about 50% of the sea cucumbers weight. More recently, the popularity of sea cucumbers has also increased because of bioactive compounds of interest due to demonstrated health beneficial effects for cancer treatment. The goals of this research was too investigate both anti-inflammatory activity and antioxidant activity in the intestines of sea cucumber fished in Icelandic waters (Cucumaria frondosa).
    Anti-inflammatory activity was measured using an assay for measuring albumin denaturation. However this test was not used for measuring potential activity in the intestines of the sea cucumbers since measurements of albumin denaturation were not successful. To test the antioxidant activity two distinct methods were applied, the 2,2 diphenyl-1-picrylhydrazyl (DPPH) method and the total antioxidant capacity (TAC) method. Both tests indicated high antioxidant activity in the sea cucumbers intestines and a slightly different activity related to the weight of the animals, with the heaviest sea cucumbers showing the least antioxidant activity.
    Keywords: Sea cucumbers, extraction, bioactivity, anti-inflammatory activity, antioxidant
    activit

Samþykkt: 
  • 14.6.2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/38889


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BirtaThorisdottir.pdf681.32 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna