is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/38931

Titill: 
  • „Það er ekkert ákvörðun um að verða foreldri, þú bara verður foreldri. Það er bara spurning hvenær“ : rannsókn á völdu barnleysi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Við búum í samfélagi sem gerir ráð fyrir að flest okkar verði á einhverjum tímapunkti foreldrar. Samt sem áður vilja ekki allir eignast börn. Valið barnleysi hefur verið að ryðja sér til rúms í samfélagi okkar síðustu árin og hafa aðilar sem valið hafa barnleysi orðið sýnilegri og meira áberandi í samfélagslegri umræðu. Í byrjun 21. aldar fór að bera á því að fæðingartíðni bæði hér á landi og um alla Evrópu fór lækkandi sem leiddi til þess að aukin athygli fór að beinast að þeim hópi fólks sem höfðu ekki áætlanir um að eignast börn í lífinu. Fyrri rannsóknir sem snúa að þeim sem valið hafa barnleysi hafa nær eingöngu fjallað um jaðarsetningu þeirra í samfélaginu og um konur sem hafna móðurhlutverkinu. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar um valið barnleysi þar sem fjallað er um viðfangsefnið frá sjónarhorni þeirra sem tekið hafa ákvörðunina. Í þessari rannsókn er valið barnleysi skoðað út frá reynsluheimi þeirra sem tekið hafa ákvörðun um að eignast ekki börn á lífsleiðinni. Rannsóknin byggist á átta opnum viðtölum með jöfnu svarhlutfalli kynja sem framkvæmd voru með eigindlega rannsóknaraðferð að leiðarljósi. Rætt var við fjórar konur og fjóra karla á aldrinum 27-37 ára sem öll höfðu valið barnleysi. Niðurstöðurnar sýndu að ástæðurnar fyrir því að kjósa barnleysi væru mismunandi. Áformum að eignast ekki börn er ákvörðunartaka sem á sér ekki stað á einni nóttu heldur er hún lengra ferli sem breytist síðar í virka ákvörðun. Allir viðmælendur tóku undir að þessi ákvörðun væri erfið. Hægt var að greina í frásögnum viðmælenda að fordómar og utanaðkomandi þrýstingur frá samfélaginu til barneigna væru til staðar. Konurnar höfðu upplifað áreiti í meira magni en karlarnir fyrir að velja barnleysi. Rannsóknin hefur samhljóm með fyrri rannsóknum, varðandi þetta viðfangsefni, sem gerðar hafa verið erlendis

  • Útdráttur er á ensku

    We live in a society that expects that most of us will become parents at some point. However, not everyone wants to have children. The voluntary childfree lifestyle has been gaining ground in our society in recent years, and those who have chosen to be childfree have become more visible and prominent in public discourse. At the beginning of the 21st century, it was reported that the birth rate both in Iceland and throughout Europe was declining, which led to increased attention being paid to the group of people who had no plans to have children whatsoever. Previous research on those who have chosen to be childfree has focused almost exclusively on their marginalization in society and on women who reject the role of being a mother. Few studies have been conducted on the ones that chose to be childfree, where the subject is discussed from the perspective of those who have made the decision. In this study, the choice is examined based on the world of experience of those who have decided not to have children in their lifetime. The study is based on eight open-ended interviews with equal gender response rates that were conducted using a qualitative research method as a guide. Four women and four men aged 27-37 were interviewed, all of whom had chosen to be childfree. The results showed that the reasons for the choices were different. Plans not to have children is a decision-making process that does not take place overnight but is a long process that later turns into an active decision. All interviewees agreed that this decision was difficult. It was possible to detect in the interviewees' accounts that prejudice and external pressure from society on childbearing were present. Women had experienced more stimuli than men for the choice. The study is in line with previous research on this subject that has been conducted abroad.

Samþykkt: 
  • 14.6.2021
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/38931


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
SigrunSif-BA-LOK2021.pdf531,09 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna